tag:blogger.com,1999:blog-8746043327074832860.post1995214390612713204..comments2023-08-05T02:26:24.365+00:00Comments on Hjónablogg: SéreignarnauðhyggjanHjónablogghttp://www.blogger.com/profile/01900680240311951358noreply@blogger.comBlogger2125tag:blogger.com,1999:blog-8746043327074832860.post-52351430361945867052010-10-11T08:01:17.003+00:002010-10-11T08:01:17.003+00:00Í silfrinu í gær komu Gunnar Smári Egilsson og Óli...Í silfrinu í gær komu Gunnar Smári Egilsson og Óli Örn Eiríksson með athyglisverðar tillögur sem gætu komið amk að hluta til í stað afskrifta. Þær ganga út á að í stað afskrifta þá leysi ÍLS til sín eignirnar og lántakendur breytist í leigjendur gegn um einskonar lyklafrumvarp.

Það þarf ekki að rífast um afskriftir , ÍLS yfirtekur viðkomandi eign.Með þessu væru margar samfélagslegar flugur slegnar í einu höggi.

Einn ávinningur væri að með þessu gæti myndast vísir að siðmenntuðum leigumarkaði á Íslandi.

Í allri umræðunni um afskriftir eða ekki afskriftir gleymist oft 3 veigamiklir þættir :

A : Rótin að þessari uppákomu ,sem er íslenska séreignastefnan.

B : Hvað kostar að afskrifa ekki neitt ? Það er ávísun á langvinna skuldakreppu og landflótta mikilvægs aldurshóps fyrir hagkerfið.

C : Hversu raunhæft er að afskrifa meðan fasteignamarkaðurinn er enn á sterum frá 007 ? Það virðist vera mikil óskhyggja í gangi í bankakerfinu um að halda lofti í skuldabólu sem er löngu sprungin.

Það er óhjákvæmilegt að hluti af lántakendum þurfa að fara gegn um gjaldþrot. Það þarf þá að gerast með mannlegum hætti, og Tillagan frá Silfrinu í gær væri sennilega besta lausnin fyrir þennan hóp.

Þó allt óselt og yfirveðsett íbúðarhúsnæði breyttist í leiguhúsnæði, þá má byggja nokkur þúsund leiguíbúðir í viðbót til að komast upp í svipað hlutfall og í nágrannalöndunum.

Á Íslandi er séreignarhlutfallið 82 %, sem er arfleifð frá þeim tíma sem húsbyggjandinn fékk gefins peninga, þegar verðbólgan eyddi láninu á nokkrum árum. Víðast hvar er séreignarhlutfallið mun lægra.

Nú er þörf á nýrri hugsun í húsnæðismálum

Guðmundur GuðmundssonAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-8746043327074832860.post-19549491039772711962010-10-11T02:52:36.474+00:002010-10-11T02:52:36.474+00:00bjóst við að sjá einhverja umræðu um séreignir ein...bjóst við að sjá einhverja umræðu um séreignir eins og í Silfrinu í dag en nei prestaprédikun!Anonymousnoreply@blogger.com