tag:blogger.com,1999:blog-8746043327074832860.post434778733488413386..comments2023-08-05T02:26:24.365+00:00Comments on Hjónablogg: Ekki þjónustupía heldur frelsariHjónablogghttp://www.blogger.com/profile/01900680240311951358noreply@blogger.comBlogger4125tag:blogger.com,1999:blog-8746043327074832860.post-7215825454334167502010-02-22T11:58:32.775+00:002010-02-22T11:58:32.775+00:00Blessaður aftur Hjalti.
Biblían útskýrir ekki þján...Blessaður aftur Hjalti.
Biblían útskýrir ekki þjáninguna heldur undrast hana eins og ég og þú. Kristin trú er trú á guð sem hrópar grátandi: "Guð minn, Guð minn hví hefur þú yfirgefið mig?" Eina lausnin sem kristin trú boðar andspænis hinni óskiljanlegu þjáningu og tilgangsleysi lífsins er persónuleg nálægð og þátttaka í kjörum hvers annars. Þess vegna eru sagðar sögurnar um Jesú Guðs son sem tók á sig aðstæður samferðamanna sinna. Það eru sögur um guð sem er almáttugur í vanmætti sínum og er öruggur þótt hann viti ekki sitt rjúkandi ráð. Trúin á Jesú er ekki vatnshelt hugmyndakerfi heldur vinátta við persónu. Trúin á Jesú er ekki útskýringakerfi fyrir veruleikann heldur uppgötvun á nýjum lífsmöguleikum. Og þegar maður hefur eignast samfélag við Jesú gerist það að mann langar til að leiða fleiri til trúar. Trúin á Jesú verður að því dýrmætasta og besta sem maður á.

b.kv.
Bjarni KarlssonAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-8746043327074832860.post-79621225863938771812010-02-22T07:52:35.429+00:002010-02-22T07:52:35.429+00:00Sæll Bjarni
Ef þú átt við að boðskapurinn eigi me...Sæll Bjarni

Ef þú átt við að boðskapurinn eigi meðal annars að vera: "Við ættum ekki að búast við hlutum eins og sjúkdómum og náttúruhamförum í sköpun góðs guðs.", þá get ég sammála þeim boðskap. Ef þú átt við að boðskapurinn sé einhvers konar útskýring á því hvers vegna náttúruhamfarir og sjúkdómar eru í sköpuninni, þá sé ég ekki hver sú útskýring er. Hver er útskýringin eiginlega? Hvernig útskýrir þú það að guð vill ekki sjúkdóma og náttúruhamfarir, en samt skapaði hann þetta?Hjaltihttps://www.blogger.com/profile/03663871073350593776noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-8746043327074832860.post-75894120596019430862010-02-21T23:04:24.349+00:002010-02-21T23:04:24.349+00:00Sæll Hjalti og takk fyrir kommentið. Ég skil helgi...Sæll Hjalti og takk fyrir kommentið. Ég skil helgisögnina um syndafallið einmitt sem skáldlega og innblásna lýsingu á þeirri furðu að böl og þjáning skuli þrífast í góðri sköpun Guðs. Bölið er jafn óvænt og höggormur sem kemur skríðandi aftan að þér og fer að spjalla.

Bjarni KarlssonAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-8746043327074832860.post-26574163749786572312010-02-21T18:37:17.550+00:002010-02-21T18:37:17.550+00:00"Allt heimsins ólán með sínum uppskeru- og af..."Allt heimsins ólán með sínum uppskeru- og aflabrestum, sjúkdómum, náttúruhamförum, hernaði, svikum og grimmd er ekki Guðs vilji."

Nú trúið þið því líklega að guðinn ykkar sé "skapari himins og jarðar". Náttúruhamfarir og sjúkdómar hljóta að vera það sem guð vildi fyrst að hann var á annað borð að skapa þetta.Hjaltihttps://www.blogger.com/profile/03663871073350593776noreply@blogger.com