miðvikudagur, 16. febrúar 2011

Að rækta ástina í lífi sínu

Gott hjónaband gerist ekki óvart og hjón sem ætla ekkert sérstakt enda einmitt þar. Okkur langar til að vekja athygli á hjónanámskeiði sem við stöndum að:
• Vídalíns- og Laugarneskirkja bjóða nú upp á námskeið til að efla samvinnu í sambúð og hjónabandi. Þetta námskeið er ætlað öllum pörum sem finnst kominn tími til þess að ná nýjum árangri í samskiptum sínum.

• Námskeiðið verður haldið fjögur þriðjudagskvöld í röð kl. 20:00 – 22:00 frá 1. til 22. mars, ýmist í safnaðarheimili Vídalínskirkju eða Laugarneskirkju. Stjórnendur eru tvenn prestshjón Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson ásamt Betsy og Gregory Aikins.

Við tölum oft um heilagt hjónaband en vitum e.t.v. ekki hvað við meinum. Markmið námskeiðsins er að styðja hjón og sambúðarfólk í því að leyfa heimili sínu að vera raunverulegur griðastaður, helgidómur, þar sem börn og fullorðnir finna frelsi til að vera sjálfum sér samkvæm.

• Fyrirspurnir má senda á jonahronn@gardasokn.is og srbjarni@ismennt.is.
• Skráning fer fram þriðjudaga til föstudaga milli 9 og 12 í síma 5656380.
• Námskeiðið kostar kr. 5000.- fyrir parið og við skráningu er greitt staðfestingargjald kr. 2000.- sem dregst frá námskeiðsgjaldi.

5 ummæli:

Oddný H. sagði...

Eruð þið til í að halda námskeiðið "Að FINNA ástina í lífi sínu" :)

Nafnlaus sagði...

Oddný!
Vinnum í þessu og látum það gerast!

Listin að finna það sem maður þráir er náskyld þeirri list að viðhalda því. Í raun þarf ekki að breyta námskeiðinu svo mikið...!

Bjarni Karlsson

Nafnlaus sagði...

"Gott hjónaband gerist ekki óvart og hjón sem ætla ekkert sérstakt enda einmitt þar."

wtf?

Oddný H. sagði...

Ég bíð þá bara... alltaf jafn (ó)þolinmóð!

xystumkaeser sagði...

Top 10 Casino Near Nashville - MapyRO
Find your favorite 안성 출장마사지 slot 동두천 출장안마 machine games near 영천 출장안마 Nashville, TN. The casino is located in Cherokee, South 상주 출장안마 Carolina and features video 양산 출장마사지 poker, slot machines,