sunnudagur, 30. ágúst 2009

Hrafnfundna land

prédikun okkar 30. ágúst 2009 í Vídalíns- og Laugarneskirkju.

Höf.: Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson


I
Djúpt í vitund þessarar þjóðar býr reiði gegn landinu sem hún á. Þeir segja ekki frá þessu ferðamannabæklingarnir og þegar fulltrúar okkar ræða við erlenda fjölmiðla örlar ekki á slíku heldur, en hver Íslendingur veit með sjálfum sér að í þjóðarsálinni bærist fleira en feginleiki og aðdáun þegar hugsað er til landsins. Þegar við tölum um klakann og skerið og staðsetjum okkur norður í ballarhafi í orði kveðnu þá eiga hugtökin sem við notum viðspyrnu í þeirri reiði sem við dyljum í garð okkar kalda lands.

Volaða land
horsælu hérvistar-slóðir,
húsgangsins trúfasta móðir,
volaða land!

Þannig ávarpaði þjóðskáldið Matthías Jochumsson fósturjörðina árið 1888 í ljóði sem hann sendi vini sínum Einari H. Kvaran ritstjóra Lögbergs í Kanada er hafís og fæðuskortur hafði þjakað þjóðina. Ljóðið var aldrei var ætlað til birtingar og uppskar slíka reiði að landinn gat vart á heilum sér tekið og átti bágt með að fyrirgefa níðið.

Hraunelda land,
hrákasmíð hrynjandi skánar,
hordregið örverpi Ránar,
hraunelda land!

Hvert erindið rekur annað í ljóðinu og öll hefjast þau á hræðilegum orðaleppum sem skáldið tileinkar landinu sem ól hann: Tröllriðna land, Hafísa land, Stórslysa land, Blóðrisa land, Vandræða land, Drepandi land, Vesæla land! Og svo lýkur hann ljóðinu með ömurlegu sjónarhorni á sjálfa helgisögn landnámsins:

Hrafnfundna land,
munt þú ei hentugast hröfnum?
Héðan er bent vorum stöfnum,
hrafnfundna land!

II
Eitt af því sem ég álít að líf mitt og starf hafi kennt mér er það að taka alltaf mark á reiði. Reiði er mikilvæg tilfinning og hún er okkur af Guði gefin til þess að við missum ekki tökin á tilverunni. Neikvæðar tilfinningar eru mikilvægar. Brunatilfinning er t.d. neikvæð en hún kemur í veg fyrir slys. Þannig er reiðin líka hagnýt ef við kunnum að hlusta á hana og nýta hana skynsamlega. Við myndum aldrei kenna börnum okkar að afneita brunatilfinningu eða svengdar- og svimatilfinningu en meðvitað og ómeðvitað höfum við kennt börnum okkar að hafna reiði sinni - og svo er okkur Íslendingum heldur aldrei kalt og þurfum enga húfu.

Þjóðin varð mjög reið Matthíasi Jochumssyni fyrir níðljóð hans um landið og var síst að skilja að skáldið sem ort hafði sjálfan þjóðsönginn gæti látið slík firn um munn sér fara, en sennilega hefur reiðin sem þar snéri að Matthíasi einmitt verið reiðin gegn sjálfu landinu sem hann leisti úr læðingi af því að skáldið þekkti innviði þjóðarsálarinnar. Það er þannig með reiðina að henni er nokk sama hvert henni er beint, bara að hún fái útrás. Því í sjálfri sér er reiðin oft heimsk og skammsýn, þótt hún sé sönn og brýn.

Í guðspjalli dagsins er Jesús að hjálpa okkur til þess að meðhöndla reiði okkar þannig að við tortímumst ekki. „Hver synd og guðlöstun verður mönnum fyrirgefin en guðlast gegn andanum verður ekki fyrirgefið.” segir hann. Það er eitt að reiðast og hlaupa á sig með stóryrðum og annað að eyðileggja lífið, hafna öllu réttlæti og sannleika þannig að tortímingin verði alger. „Hverjum sem mælir gegn Mannssyninum verður það fyrirgefið en þeim sem mælir gegn heilögum anda verður ekki fyrirgefið, hvorki í þessum heimi né í hinum komanda.” segir Jesús í guðspjalli dagsins. (Matt. 12.31ff)

Við erum langreið þjóð og við vitum það vel. Við tortryggjum náttúru landsins sem okkur finnst líka alltaf hafa verið á móti okkur. Sú stórfjölskylda er ekki til sem ekki hefur misst einhvern nákomin ofan í haf eða undir snjó. Öll stórfjölskylda móðurafa míns heitins fluttist á mölina eftir suðurlandsskjálftann skömmu fyrir aldamótin 1900 og ég ólst upp við sögurnar af þeim voðaatburðum er landið gekk í bylgjum og hvernig afasystur minni var naumlega bjargað úr bæjarrústunum að Áshóli í Holtum. Hver fjölskylda á sínar sögur af hinni viðsjálu náttúru landsins.

Reiði er alltaf tjáning á vanmætti. Reiði okkar í garð landsins og náttúru þess tjáum við með margvíslegum duldum hætti, m.a. með því að klæða okkur illa og láta alltaf eins og okkur sér ekkert kalt. Margt sem tengist einhverju þjóðlegu höfum við líka gert að kjánaskap eða þvingun:
Á 17. júní syngjum við „hæ, hó jibbí jei!” og fjallkonan í múnderingu prílar upp á pall að lesa ljóð eftir löngu dauðan kall. Fánalögin okkar eru svo stíf að það er ekki hægt að fara eftir þeim. Niðurstaðan er sú að fáir nenna að eiga fánastöng við hús sitt og enginn getur í rauninni notað okkar fallega þjóðfána svo sem bæri. Þjóðsöngurinn okkar yndislegi er samt þannig að við höfum minnimáttarkennd gagnvart honum og fáir sem treysta sér til þess að syngja hann. Þjóðbúningur kvenna kostar mörg mánaðarlaun og er óþægilegur í að vera. Svo eru e.t.v. bara tíu manns á Íslandi sem kunna að tala Íslensku almennilega. Allt fólk er alið upp í vanmetakennd gagnvart móðurmálinu og menn keppast við að leiðrétta hver annan í málfari og stafsetningu.

Allt eru þetta einkenni reiðinnar sem vanmáttur okkar veldur. En reiðin sem hér um ræðir er líklega mikilvægur þáttur í þeim vanda sem þjóð okkar stendur andspænis í dag. Við höfum numið landið en við erum ekki búin að ákveða hvort við elskum það. Við höfum stofnað lýðveldi en við vitum ekki með vissu hvort okkur langar að vera þjóð. Þess vegna unum við ennþá spillingunni og öllum vinagreiðunum framhjá regluverki samfélagsins, svörtu atvinnunni sem nemur fjörutíu milljörðum á ári og öllu öðru sem við ástundum gegn kerfinu. Já, við tölum um kerfið og gjöldum varhug við helstu stofnunum samfélagsins og búmst ekki við réttlátri málsmeðferð á neinu sviði. Við svindlum vegna þess að við álítum að lífið sé svindl hvort eð er. - Við notum engar húfur, okkur er ekkert kalt og það skal ekki rigna!

III
„Hver synd og guðlöstun verður mönnum fyrirgefin en guðlast gegn andanum verður ekki fyrirgefið.”

Freistingar og synd eru af þrennum toga. Til er synd gegn líkamanum, efninu. Í annan stað er syndin gegn sálinni. En syndin sem snýr að andanum er verst og hún verður ekki fyrirgefin. Freistingafrásagan af Jesú fjallar um þetta. Eftir að Jesús hafði verið skírður í ánni Jódan var hann leiddur af andanum út í óbyggðir til þess að hans yrði freistað. Þar dvaldi hann í fjörutíu daga og nætur uns djöfullinn birtist honum og gerði þrjár atrennur að honum. Fyrst reyndi hann að freista hans til að syndga gegn líkamanum með því að fara ódýrar leiðir til að tryggja efnislegt öryggi sitt. „Ef þú ert sonur Guðs, þá bjóð þú að steinar þessir verði að brauði.” En Jesús svaraði með tilvísun í heilaga ritningu að líf mannsins væri meira en efnið eitt. Þá tók djöfullinn Jesú með sér upp á þakbrún musterisins að hann skyldi syndga gegn sálinni. Hann hvatti hann til þess að fara ódýrar leiðir í því skyni að afla sér frægðar og tryggja þannig félagslegt öryggi sitt. „Ef þú ert sonur Guðs þá kasta þér ofan því að ritað er: Hann mun fela þig englum sínum og þeir munu bera þig á höndum sér að þú steytir ekki fót þinn við steini.“
Syndin gegn líkamanum og sálinni á rætur í þeirri vantrú að Guð muni ekki gefa okkur það sem þarf til líkama og sálar. Í ótta okkar gerumst við gráðug og útsmogin að afla okkur efnislegra gæða og félagslegs öryggis, - peninga og frægðar. Við baktölum, blekkjum og svíkjum og olnbogumst áfram af því að við treystum ekki, trúum ekki að lífið sé okkur gefið af góðum hug. Við höfum t.d. enn varla lært að standa allsgáð í röð og bíða eftir afgreiðslu. Einu raðirnar sem þessi þjóð þolir eru raðir inná skemmtistaði þegar búið er að baða miðtaugakerfið upp úr alkahóli.

IV
Hrunið kom áður en við næðum að syndga gegn andanum. Við vorum búin að breyta steinum í brauð, - skuldum í eign - og höfðum þegar varpað okkur fram af þakbrún frægðarþorstans í trausti þess að hulin hönd markaðarins myndi bera okkur til dýrðar. Við vorum svo þægilega vafin í syndina gegn líkamanum og sálinni. Nú stóðum við á ofurháu fjalli valdsins og horfðum yfir öll ríki heims á dýrð þeirra: „Allt þetta skal ég gefa þér” sagði freistarinn „ef þú fellur fram og tilbiður mig.” (Matt. 4.1-11) Og vegna þess að við vorum orðin lyginni vön og þeirri notalegu hugsun að eftir allt væri græðgin bara öllum fyrir bestu, þá þótti okkur ekkert óþægilegt að heyra það haft eftir opinberum aðilum að eitt af hinum góðu þjóðareinkennum sem gerði okkur hæfari en aðrar þjóðir væri agaleysi okkar og það hversu óútreiknanleg við værum í viðskiptum. Já, syndin gegn andanum var farin að hreiðra um sig í fylgsnum þjóðarsálarinnar, gnýr einkaþotunnar var í hlustunum og lyktin af valdinu í nösunum þegar öllu var skyndilega kippt undan fótum okkar.

Við skyldum ekki vanmeta helgisögnina en íhuga hana og leyfa sannleika hennar að seytla ofan í sálarfylgsnin.

Nú eru nýir tímar. Nú höfum við, þessi langreiða þjóð, nýtt tækifæri til þess að þiggja græðslu og fyrirgefningu. Því synd okkar gegn líkamanum og sálinni, lastmæli okkar gegn landi og lýð, spillingin og heimskan verður fyrirgefin því allt var það í eðli sínu ekki annað en lastmæli gegn Kristi Jesú sem borið hefur alla veröld upp á krossinn.
Þessar syndir geta máðst, segir frelsari okkar í Guðspjalli dagsins. Þessi sár mega gróa ef þjóðin gerir iðrun og yfirbót og snýr sér til mín. Þessi synd var ekki synd til dauða. Enn höfðuð þið ekki syndgað gegn andanum og gefist hinum illa grímulaust á vald.

Nú skulum við biðja þess að Íslensk þjóð komi til sjálfrar sín, viðurkenni reiði sína og vanmátt og strengi þess heit að fara aldrei framar ódýrar leiðir í ótta sínum. Þá munu börn okkar eiga framtíð og þau munu elska þetta land og langa til þess að vera þjóð í hópi þjóða.

Amen.


Textar sunnudagsins:
Sálm 40.2-6
Jak 3.8-12
Matt 12.31-37

sunnudagur, 9. ágúst 2009

Skylduaðild að veruleikanum

Hér er prédikun okkar frá þessum sunnudegi 9.8. 2009

I
Internetið er stórkostlegt.
Líkast til erum við ekki búin að átta okkur á þeirri byltingu sem alnetið er og vitum svo sem heldur ekki hvað mun gerast því að aldrei áður hafa jarðarbúar getað skipst á upplýsingum með viðlíka hraða. Með tilkomu alnetsins flýtur svo margt upp á yfirborð mannlífsins sem áður var hulið og nýjar heildarmyndir taka að birtast. Aðstæður ókunnugs fólks í fjarlægum löndum eru nú aðgengilegar í máli og myndum og hver sem vill segja sögu sína getur varpað henni út á netið þar sem hún geymist um aldur, - eða alltént alveg þangað til slokknar á rafmagninu.

En það sem merkilegast er í þessu öllu er sú staðreynd að það er enginn við stjórnvölinn. Kínastjórn, Bush-öflin í Bandaríkjunum og aðrir hefðbundnir valdamenn sem margt hafa að fela vita ekki sitt rjúkandi ráð vegna þess að gamalreyndu þöggunaraðferðirnar bíta ekki lengur. Alnetið hefur engan ótta rásandi á ljóshraða um hnattkúluna. Við vitum svo sem að alnetið er ekki bara óttalaust það hefur heldur engan sóma. Óvandaðir menn hafa fyllt það af grimmd og allskyns ljótleika sem hvert barn getur nálgast nema það eigi ástvini sem vernda það. Þetta vitum við líka. En hin stóra frétt alnetsins er ekki grimmdin því hún hefur verið í heiminum allan tímann. Nýungin sem alnetið ber inn í veröldina er hið óþaggandi tjáningarfrelsi og sú öra söfnun upplýsinga sem fram fer. Almannarómur hefur þar eignast nýja vídd og almannahagur hefur fengið sýnileika sem gerir það að verkum að hið ævaforna og langþróaða þvingunarvald hefur óvænt misst slagrými í veröldinni. Nú er lygin ekki jafn örugg aðferð og hún alltaf hefur verið. - Það gæti lekið á netið. Wikileaks gæti birt skýrslur. Á sléttum Eþíópíu, þar sem rafmagn og vatn er af skornum skammti, er gott netsamband í gegnum GSM kerfið. Í stórborgum Indlands þar sem bláfátækur almenningur berst fyrir lífi sínu eiga flestir sinn GSM síma. Hvenær sem stórviðburðir verða í veröldinni streyma upptökur með mynd og hljóði í gegnum ótal litla síma í almenningseigu.

II
Í þessu samhengi er merkilegt að heyra upphaf 12. kafla Lúkasarguðspjalls, en texti þessa sunnudags kemur einmitt úr þeim kafla þar sem Jesús er að fjalla um ótta og óttastjórnun, og það mætti halda að hann væri í þann mund að fara að kynna internetið og GSM kerfið fyrir notendum er hann segir:
„ Ekkert er hulið sem eigi verður opinbert né leynt er eigi verður kunnugt. Því mun allt það sem þér hafið talað í myrkri heyrast í birtu, og það sem þér hafið hvíslað í herbergjum mun kunngjört á þökum uppi.” (Lúk. 12.2-3)
Þannig hefur Jesús mál sitt þegar hann vill leiða lærisveina sína inn í lögmál frelsisins svo að þeir séu óhræddir við valdið í heiminum. Hann byrjar á því að staðhæfa að allt sé opinbert. “Privat is public!” – „Hið einkalega er opinbert” hefur m.a. orðið eitt af einkennisorðum feminismans þar sem tekist er á við rótgróðið valdakerfi karlaveldisins.

„ Ekkert er hulið sem eigi verður opinbert né leynt er eigi verður kunnugt.” segir Jesús. M.ö.o.: Veruleikinn er einn og við erum öll þar inni.

Fátt er hinu hefðbundna veraldarvaldi viðlíka þyrnir í augum og staðhæfing sem þessi. Megin aðferð í allri þöggun og þvingun er sú að búa til lagskiptan veruleika þar sem ekki smitast upplýsingar á milli. En þegar samskipti komast á og lifandi fólk fer að tala saman þá áttar það sig á því að hvarvetna er lífið eins. Sá sem hefur dökka húð er að berjast samskonar lífsbaráttu og hinn sem er með hvíta húð. Þau sem eru gagnkynhneigð þrá ást, unað og trúfesti með sama hætti og þau sem eru samkynhneigð. Konur vilja hafa völd eins og karlar og karlar njóta þess að veita þjónustu eins og konur gera. Það er eitthvað til sem heitir almannaheill og almannahagur sem sem allar upplýsingar benda til að sé mjög áþreifanlegt fyrirbæri.

Í ræðu sinni í 12. kafla Lúkasarguðspjalls er Jesús að tala um almannahag og það hvernig við missum af honum ef við erum hrædd og smásmuguleg en getum gengið að honum vísum ef við bara trúum og treystum. „Gætið ykkar og varist alla ágirnd. Enginn þiggur líf af eigum sínum þótt auðugur sé.”(v. 15) segir hann, og svo gefur hann söguna af ríka bóndanum sem var allur í sjálfum sér og sá ekkert út fyrir sína þröngu hagsmuni svo að hann bara dó fyrir hreinan misskilning. Ríki bóndinn misskildi leikinn af því að hann gat ekki séð að þau gæði sem honum höfðu hlotnast væru gjafir. Hann leit á lífsgæði sín sem eigin feng og skildi ekki að enginn á neitt fyrr en hann hefur látið það renna áfram. Listin að lifa er í því fólgin að þiggja með þökkum, meðhöndla af leikni og veita svo áfram af rausn, en ríki bóndinn var bara stjarfur og safnaði öllu upp í hlöðuna sína. „Heimskingi!” sagði Guð við hann, svo var hann dauður.

III
Jón Vídalín biskup var einn af merkustu mönnum sem þjóðin hefur alið, og enn vara áhrif hans í samtíma okkar. Hann missti föður sinn ungur og fékk að kynnast sárri fátækt og umkomuleysi Íslensks almennings á 17. öld. Og er örlögin höguðu því svo að hann komst til mennta og valda og varð biskup yfir Íslandi þá gerði hann prédikunarstólinn að skjóli fátækrar alþýðu fyrir ofríki valdsstéttarinnar. Ræður hans voru harðar og þar fengu allir sitt að heyra, fátækir jafnt sem ríkir, en rauði þráðurinn í öllu verki þessa sterka kennimanns var vitundin um heilagleika Guðs og jöfnuð allra manna. Höfuðástæða þess að Íslenskur almenningur tók ræður og hómilíur Jóns Vídalíns inn að hjarta sínu var sú að hann bar virðingu fyrir almannahag í Jesú nafni. “Ég vildi og fátt eitt við yður talað hafa, þér veraldarhöfðingjar, með yðar góða leyfi.” Sagði hann í einni ræðu sinni. “Munu þeir ekki finnast yðar á meðal er svefnhöfgi renni á í dómarasæti? Ég vil eigi tala um það hversu menn [...] spilla stefnum og vitnum [...] og útleggja lögin eftir því sem menn þykjast við þurfa í það sinn og aka þeim eins og seglum eftir veðrinu.” (Vídalínspostilla s. 202)

Og sem biskup krafði hann presta sína um að standa vörð um réttlætið, áminna valdsmenn ef með þyrfti og gæta þess að réttur lítilmagnans væri ekki fyrir borð borinn. Með því kvað Jón Vídalín prestinn standa vörð um sálarheill valdsmannsins að hann áminnti hann um að syndga ekki gegn Guði með því að bregðast í því ráðsmennskuhlutverki sem honum hefði verið falið. Og hætt er við að einhverjum kennimanninum hafi sviðið er Jón Vídalín mælti: „Og þótt menn séu nú svo spakir við höfðingjana og þá hverra vald menn óttast þá vantar menn ekki suma hverja á stundum að brúka síns embættis myndugleika við lítilmagnann...” (Vídalínspostilla s. 200-201)

Enda þótt Jón Vídalín hlyti upphefð í augum manna, þá gleymdi hann aldrei samhengi sínu við almannahag. Hann óttaðst Guð einan og boðaði í Jesú nafni skylduaðild allra manna að veruleikanum, hvar í flokki sem þeir stæðu.

IV
„Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því að föður yðar hefur þóknast að gefa yður ríkið.” Segir Jesús í beinu framhaldi af sögunni um ríka bóndann. (v.32) Ástæða þess að við þurfum ekkert að óttast í heiminum er einfaldlega sú að við eigum allt. Föður okkar hefur þóknast að gefa okkur ríkið. Himinn og jörð eru þín og mín. Hið opinbera er einka! „Seljið eigur yðar og gefið ölmusu, fáið yður pyngjur er slitna ekki, fjársjóð á himnum er þrýtur ekki, þar sem þjófur fær eigi í nánd komist né mölur spillt. Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera. “ (v.33-34)Í þessu ljósi verða auðskilin orð Jesú í guðspjalli dagsins er hann áminnir alla sem með völd fara og segir: „Hver er sá trúi og hyggni ráðsmaður sem húsbóndinn setur yfir hjú sín að gefa þeim skammtinn á rétum tíma? Sæll er sá þjónn er húsbóndinn finnur breyta svo er hann kemur. [...] En ef sá þjónn segir í hjarta sínu: Það dregst að húsbóndi minn komi, og tekur að berja þjóna og þernur, eta og drekka og verða ölvaður, þá mun húsbóndi þess þjóns koma á þeim degi er hann væntir ekki, á þeirri stundu er hann veit ekki, höggva hann og láta hann fá hlut með ótrúum.
Sá þjónn sem veit vilja húsbónda síns og hirðir ekki um að hlýða honum mun barinn mörg högg. En hinn sem veit ekki hvað húsbóndi hans vill en vinnur til refsingar mun barinn fá högg. Hver sem mikið er gefið verður mikils krafinn og af þeim verður meira heimtað sem meira er léð.”

Veruleikinn er einn og við erum öll þar inni.
Guð vill almannaheill.

Amen.

laugardagur, 8. ágúst 2009

Gleðigangan - samstaða um lífsfögnuðinn

Bjarni skrifar:
Nú hefst gleðigangan kl. 14:00 í dag. Margt hefur breyst frá því að fyrstu göngumenn héldu niður Laugaveginn fáliðaðir og fyrirlitnir. Í mínum huga er Gay pride einhver kristilegasti atburður sem á sér stað með þjóðinni. - Jól á miðju sumri þar sem krafan um réttlæti og lífsfögnuðurinn rennur saman í einn stóran farveg. Ég er viss um að stemmningin hefur verið eitthvað í þessa áttina þegar Jesús kom ríðandi á asnanum inn í Jerúsalem og fólkið tók að syngja og fagna og veifa pálmagreinum. Fulltrúar ríkjandi skipulags urðu vitaskuld smeykir og skipuð Jesú að þagga niður í múgnum, en hann svaraði: „Ég segi ykkur, ef þessir þegja munu steinarnir hrópa."

Snilld homma og lesbía að sigrast á fordómum og reiði með gleðilátum er í ætt við aðferð Jesú Krists. Hann hélt hneykslanlegar veislur og var kallaður átvagl og vínsvelgur af samtíð sinni, umsetinn af fólki sem margir álitu siðferðislega gjaldfallið. Og þegar hann var ásakaður fyrir þetta svaraði hann: Farið og nemið hvað þetta merkir: "Miskunnsemi vil ég, ekki fórnir." og vitnaði þar til fornra spádómsorða í Gamla Testamenntinu. Það er kristin trú og kristinn siður að viðurkenna að lífið er fætt til að sigra, fagna og elska.

Ég ætla að skella mér í gleðigönguna og fara svo beint út í kirkju síðar í dag til að gefa saman tvö gagnkynhneigð pör. Núna trúi ég að þeir tímar séu komnir að Alþingi Íslendinga með Jóhönnu Sigurðardóttur í fararbroddi geti sameinað hjúskaparlögin svo að þau gildi jafnt fyrir alla. Þá er ég sannfærður um að Þjóðkirkjan muni koma til sjálfrar sín, kannast við frelsara sinn, og ekki skorast undan því að viðurkenna að hjónabandið er eitt, því ástin og trúfestin er ein, hvort sem við erum gagnelsk eða samelsk.

Gleðigangan er núna á eftir!